220soldiers

220 4life

02.06.2007 14:50:29 / Villi

Keepin´ busy

Það er nú orðið langt frá síðustu færslu! Mikið um að vera þessa dagana og er maður sveittur að vinna alla daga sem og að æfa auðvitað. Er búinn að vera að mæta á æfingar með Keflavík, þar sem menn mæta bara og spila, enda aðeins vor og langt í tímabil. Einnig er mar að þjálfa pjakka á kvöldin og vinna í dyravörslu um helgar þannig það er nóg um að vera.

Flutningar eru á næsta leyti og á íbúðin mín að vera tilbúin á milli 20. júní og 1. júlí. Ég og Danny erum svo að fara til Serbíu þann 15. júní að hreyfa á okkur rassgatið :)

Gaman er að segja frá því að Jónasson og ég erum vanir að kalla hvorn annan hlunk, vegna þess hve við erum helvatnaðir....þetta er allt í mesta bróðerni og ekkert illt meint með þessu! En nú á dögunum þá verður hlunkanafnið tekið á hærra stig því Kiddi var að spila með landsliðinu um daginn og ekki vildi betur til að HLUNKURINN fór í hraðaupphlaup, hóf sig til flugs, tróð tuðrunni og BRAUT KÖRFUNA hahahaha 8| Hann er þá búinn að skrá nafn sitt í bók með þeim Shaquille O´Neal, Darryl Dawkins og Daníeli Árnasyni.

Þetta gerðist víst einhvernveginn svona: http://www.youtube.com/watch?v=id9BWXQLSrk

 

 

 

Myndirnar eru teknar af www.karfan.is, þar sem þeir gáfu Kidda nýtt nickname: Kristinn "Hringabrjótur" Jónasson.:haha:

 

Vilson 

  


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 22:04:32 / Villi

Sögustund

Ég og Jónasson Fjölnismaður erum búnir að vera duglegir að minnast á fortíðina undanfarið þannig að afhverju ekki að halda áfram með góðar sögur úr æskunni:

 Eins og Kiddi þá byrjaði ég íþróttaferill minn í FH í handbolta. Mér tókst ekki að skora sjálfsmark og var örugglega ekki eins efnilegur og KJ þó ég hafi verið lúnkinn. Ég man ekki mikið eftir þessum árum en það sem er mér minnisstæðast er að ég hef verið svona 7 ára að verða 8 þegar ég var nýbúinn að komast að því hvað 2ja mínútna brottvísun var. Við vorum alltaf að spila á æfingum og ég var alltaf tekinn útaf öðru hvoru af þjálfara mínum honum Geir Hallsteins. Ég eyddi mörgum klukkutímum í að hugsa hvað í anskotanum ég hefði gert til þess að verðskulda allar þessar 2ja mínútna brottvísanir en þorði samt ekki að spyrja þjálfarann. Svona gekk þetta í einhvern tíma og ég var farinn að halda að ég væri algjör "ruddi" og svaka tuddari þarna í handboltanum. Svo gerðist það einn daginn að ég spurði Geir þjálfara afhverju hann væri alltaf að reka mig útaf, því ég mundi ekki eftir að hafa meitt neinn. En Geir sagði við mig "Villi minn, ég er bara að skipta þér útaf svo allir fái að spila". 8| Stuttu síðar lauk hanboltaferli mínum og ég fór að einbeita mér að körfunni. Enda ekki byggður í svona líkamlega átök eins og hanboltinn er hehe :$

Önnur góð saga er þegar ég og Jónasson vorum búnir að spæna upp malbikið á Setbergsvellinum OKKAR í nokkur ár. Oft rifumst við eins og hundur og köttur....og gerum reyndar enn hehe :haha: Yfirleitt var það samt Kiddi sem fór í fýlu...eða kannski var það bara svona 50/50. Einn daginn lentum við í rökræðum um það hvort Grant Hill eða Shawn Kemp væru betri í körfubolta...við höfum verið svona 11 og 12 ára og var Grant Hill uppáhaldsleikmaðurinn minn og Kiddi dýrkaði Shawn Kemp. Rökræðurnar enduðu þannig að við fórum báðir í fýlu og ég fór heim til mín og Kiddi heim til sín. Við leyfðum hvor öðrum að fá smá pásu á hvor öðrum það sem eftir lifði þessa dags. Daginn eftir var allt gleymt og grafið og við mættir upp á völl um 6 eða 7 leytið. Allt leit helvíti vel út, veðrið var gott en ein breyting var hinsvegar á körfuboltavellinum. Búið var að skrifa með spreybrúsa við 3ja stiga línuna "Grant Hill er hommi". Ég trúði ekki mínum eigin augum og var lítil sál mjög særð á þessum tíma, enda aðeins 12 ára. Ég var ekki viss um hver gerði þetta :$: en grunaði ákveðinn aðila sem síðar játaði á sig verknaðinn. Kiddi fór semsagt heim til sín í fýlu, sem og ég, náði í spreybrúsa og ákvað sko að eiga síðasta orðið í þessum rökræðum okkar :haha:

Hér má sjá mynd af vellinum og þessi setning er þarna enn, þó hún sjáist óljóst á þessari mynd. 

Bara snilld....KJ ef þú manst eftir fleiri æskusögum þá endilega hentu þeim inn hehehe :haha:

Endilega skiljið eftir komment


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 13:20:13 / kiddi j

Smásaga......

 

Jæja þá er maður officcially búinn að skipta um lið og það yfir í Fjölni í Grafarvoginum....Er ég bara nokkuð sáttur með það val og hlakka mikið til þess að fara að æfa á fullu og skila kanski einum- tveim tittlum í voginn.

 Kannski ekki margir sem vita þetta en Fjölnir er fyrsta íþróttafélagið sem ég æfði með. Og íþróttinn var enginn önnur en Handbolti

Skemmtilega saga er nú að segja frá því, en ég neitaði að æfa með mínum aldursflokk, sökum þess að Benni frændi minn var að æfa þarna líka og þá með sínum aldursflokk, piltum fæddum 1983, þarna var ég 7 ára gamall. Við æfðum eins og sveittir melir í  eina viku í íþróttahúsinu í  Hamraskóla. Svo kom að fyrsta leiknum á mót FH og ég var í byrjunarliðinu ásamt Bennanum, sem var þá í Reebok pump skóm með taflborðs reimum. Ég var nú bara í einhverjum LA gear skóm með ljósum...en jæja who cares.

 

Málið var í þessum leik fékk ég strax boltan og hljóp í átt að markinu og dúndraði stöngina inn, en það vesta var að þetta var mitt eigið mark. Maður var svo graður í að skora, að ég hlustaði ekki á neinn sem öskraði,, Vitlaust mark Kiddi!!!!!!´´ Ég fagnaði alveg eins og mér einum er lagið, en varð síðan frekar vandræðalegur þegar ég fattaði að ég hafði skorað sjálfsmark. Ég skil ekki enn þann dag í dag afhverju ég hélt að markvörðurinn í liðinu mínu væri alltí einu kominn í FH. Svona er það að vera markgraður býst ég við.

 

En árið eftir fór ég í FH þegar við fluttum í fjörðinn, og varð markakóngur í 2 mótum, þá var loksing búið að benda mér á það að skjóta á rétt mark. Ekki entist ég lengi þar vegna þess að mér tókst að komast upp á kannt við tvo af leikmönnum íslandsmeistara FH í fótbolta :D.

 

Og 9 aldursárið mitt gekk ég til liðs við Hauka þar sem ég kynntist 220 soldiers Villa og Dodda. Meistari Pétur Ingvarsson var þá þjálfari og voru það skemmtilegustu ár körfuboltans. Þá voru allir krúnurakaðir, spiluðu streetball frá 8-12 um kvöldið og bíttuðu körfuboltamyndum, sumir stálu þeim þó, heheheh.

Kveðja

Kiddi


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 09:22:54 / kiddi j

Jájá.....

Mar þorir nú ekki nema að skrifa eins og svo sem eina færslu því að prince william er beiskari heldur en vicks brjóstsykur yfir því að mar nennir aldrei að skrifa :lol:.  En nú hef ég enga afsökun til að koma mér frá skriftum sökum þess að prófin eru búinn og verkefna tíminn er ekki byrjaður.

En ég vill nú kannski byrja á því að segja frá atviki sem ég lennti í með fyrverandi eiganda nýja ökutækisins sem ég var að fjárfesta í. Félaginn heitir Valdimar Ágúst Emilsson ef einhver þekkir hann. Málið var svo að ég setti innn auglýsingu eftir manninum á live2cruize.com hehe, og viti menn, nokkrir spekingar þar könnuðust við meistaran. Ekki leið langur tími þangað til einhver stelpa sendi mér mail og sagðist vera systir konunar hanns. Hún sagðist ætla að láta hann hringja í mig um leið og hún næði í skottið á honum, btw  þessi gaur er í einhverjum vafasömum business og vill ekki láta finna sig. Svo um kl 11 á föstudaginn hringir kvikindið úr leyninúmeri og segir ,,Taktu auglýsingun út og ég mun hafa samband.....dudududu´´ skellti bara á mig. Voða hetja greinilega, en ég tók hana út og hann hefur ekki en haft samband.  Snillingur mikill þarna á ferð. Spurning hvort maður setji inn aðra auglýsingu á live2cruize og bjóði fundarlaun á draslið. ???

En svo var lokahóf mfl hauka á laugardaginn, og var enginn annar en meistari Reynir..ReyRey´´ Kristjánsson veislustjóri kvöldins og aldrei þessu vant þá reytti hann af sér 5aura brandaran sem aldrei fyrr, við góðar undirtektir hjá flestum sem þekkja vel til hanns. Hann tók nú einn góðan djóker  á Villan m.a. Ágætis stemning var þarna og maturinn var nokkuð góður. Ég fékk kempu verðlun fyrir 100 leiki, en Sæsinn fékk  gamlingja verðlaun fyrir 150 leiki. Siggi var  valinn bestir varnamaðurinn og Roni Leimu besti leikmaðurinn, trúlega í fyrsta skiptið sem finnskur leikmaður fær það á Íslandi;). Ekki var nú mikið sagt um mfl karla en við fengum neikvæða umræðu í rúmar 10 mínutur af þessum 5 tímum sem við vorum þarna :frown: en þar sem við skitum upp á bak og gerðum nú ekkert merkilegra en að falla niður um deild áttum við ekki meira skilið. Spurning okkur hafi samt verið boðið þangað til vað vera borðskraut.

Gústi sýndi nokkur emotional video eins og honum einum er lagið með lögum eins og eye of the tiger, were are the champions, og nothing else matters. Þetta er klárlega metnaðafullasti þjálfari  á landinu, og fær hann mikið respect fyrir það.  En maður kvöldsins var samt sem áður meistari Reynir, þessi maður er algjör snillingur.8)

En svo er spurning með  næsta tímabil, mar veit ekkert hvað maður gerir. 8)

Nógu langt að sinni

KJ kannski 10 gæti verið önnur tala 8)

kveður að sinni.


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 12:39:20 / Villi

Herma eftir GB

Ég hef lengi veirð að hugsa hvað ég eigi að skrifa hér á blogginu, þau síðustu eru búin að vera heldur súr....En ég fór á bloggið hjá góðini mínum og fellow piparsveini GB Sandholt. Hann var með topp 10 lista yfir bestu diskana sína í tónlistinni og ég ætla að herma eftir honum og koma með topp 10 lista yfir bestu bíómyndir að mínu mati.

 1. Scarface-Einfaldlega besta mynd allra tíma

2. Reservior Dogs-Mynd eftir Tarantino, frekar súr mynd með svartan húmor en ég elska hana

3. Pulp Fiction-Önnur Tarantino mynd, einfaldlega geggjuð

4. Shawshank Redemption-Mjög löng en mjög góð mynd með Tim Robbins og Morgan Freeman

5. Goodfellas- Mafíumynd, ég elska mafíumyndir

6. Godfather collection-verð að setja allar myndirnar í eitt, geggjaðar mafíumyndir

7. Old School-mynd sem ég er búinn að sjá yfir 50 sinnum og fæ aldrei leið á.

8. Friday collection- Svo fyndnar myndir, ég og Kiddi erum búnir að horfa svo oft á þetta að við ákváðum eitt kvöldið útí Serbíu að horfa á eina myndina með frönsku tali....hlógum samt alveg jafn mikið hehe :haha:

9. American Beauty- Mjög góð mynd með Kevn Spacey, hef bara séð hana einu sinni en man alltaf eftir henni.

10. American History X-eftir þessa mynd ætlaði ég sko að fá mér mörg tattoo en sem betur fer óx maður uppúr því...Edward Norton er bara geggjaður í þessari mynd.

 

Ég er örugglega að gleyma einhverjum myndum en það er í lagi....komið með komment um hvað vantar ;)

 Villus is out

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 16:50:43 / Villi

What´s up Vanilla face

Já ekki er nú mikið um færslur frá Jónassyni þessa dagana!! Ég skelli þá bara inn einni stuttri.

Þá er ég búinn að vinna minn fyrsta íslandsmeistaratitil sem þjálfari, get ekki annað sagt en að ég sé pínu montinn...annað væri lygi. Pjakkarnir mínir unnu Grindavík í hreinum úrslitaleik síðustu helgi. Við fengum bikar og allan pakkann, sem var örugglega búinn til samdægurs í flyti, enda skakkur og alles.....EN BIKAR ENGU AÐ SÍÐUR 8)

Ég og Kiddi eru ennþá spriklandi í körfunni, höfum verið að mæta á æfingar hjá drengjaflokki, sem eru 16-18 ára peyjar. Það er nú fínt að hlaupa aðeins, því ekki eru æfignar hjá meistaraflokki alla vega 8|

Við hlunkarnir fórum í dag og festum kaupa á bíl handa Kiddanum enda maðurinn að verða brjálaður með aðeins einn bíl á heimilinum fyrir hann og gömlu ;) Dodge Intrepid varð fyrir valinu og það vantaði öll ljós, húdd, afturstuðara og afturhlera....En engar áhyggjur það er búið að redda þessum pörtum:lol: Pjakkurinn fékk hann á helvíti góðu verði!!! Congratz

Ekki mikið í fréttum, c.a. 2 mánuðir í flutning og ef einhver á ódýran en þægilegan sófa þá má hann hringja í mig í 865-2928. En hér fyrir neðan eru 2 video sem ég verð bara að setja inn, við félagarnir gjörsamlega búnir að emja yfir þessum 2 eðal kjánum í þessum videoum ;) enjoy:haha:

 http://www.youtube.com/watch?v=iMjG2s6UOaw Hlustið á hreiminn hjá Arnold hahaha :)

http://www.youtube.com/watch?v=lqMjb7dON8o Shiit hvað þetta er fyndið en flestir hafa örugglega séð myndina ;)

 

Íslandsmeistarar 2007 :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 17:19:34 / Villi

Blessuð blíðan...

Fyrst það er svona gott veður þá ætla ég að skella inn nokkrum línum!!! Ég er reyndar gjörsamlega að kafna í verkefnum í skólanum en það verður víst einhver að sinna þessari síðu hehe 8) Ég las á mbl.is í gær að maður í Texas hafi myrt fyrrverandi konu sína, bútað hana niður og skellt henni á grillið úti á veröndinni....hann varð víst svo afbrýðisamur að einhver annar væri farinn að pensla þannig að hann ákvað víst bara að skella henni á grillið!! Hvað er að fólkið eiginlega. Spurning hvort hann hafi notað barbeque sósu :S

Kallinn er búinn að fá vinnu uppi á flugstöð í sumar! Alveg nokkuð sáttur með það og ég ætla nú að reyna að redda mér einhverri þjálfun með. Það er verið á fullu að byggja blokkina mína og ég flyt inn í júní.

Fór á bifröst um síðustu helgi því Stjáni P. aka McFeitur var að klára prófin þannig við Elli ákváðum að skella okkur í nokkra kalda með honum. Helvíti fínt kvöld en bakaleiðin ekki alveg nógu góð....svo mikið rok að bíllinn minn lyftist í eitt skipti þegar við mættum rútu, þannig ég ákvað bara að leika gamlan kall í umferðinni, keyrði á 60, hélt um stýrið "tíumínútur í tvö" og hlustaði á Gullbylgjuna. :haha: En þetta var nú samt skárra en þegar ég sofnaði við stýrið á leiðinni frá Akureyri fyrir nokkrum árum, þar sem Kiddinn bjargaði lífi okkar...þú kannski manst eftir þessu Jónasson hehe 8|

 Góðvinur okkar Kidda hann Skúli Steinn er orðinn frægasti maður Íslands sökum myndbanda sem hann skellti á vefinn af "einhverjum" að blasta mótorhjólið sitt. Kastljósið lætur hann ekki í friði og ekki kellingarnar heldur ;)

Jæja ég þarf vísta að fara að þjálfa....KEYRIÐ VARLEGA :)

 VILLI


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 15:18:41 / Villi

March Madness...

March madness er í fullum gangi, en fyrir þá sem ekki vita þá er það úrslitakeppnin í háskólakörfuboltanum í US and A. Ég spái Florida skólanum sigri og endilega þeir sem hafa einhverja skoðun á þessu, hendið inn kommentum og segið hvaða skóli muni vinna.

Úrslitakeppnin í íslenska boltanum byjaði einnig í gær og ég og Roni ætluðum að skella okkur inni í vesturbæ á leik en hann var sýndur í sjónvarpinu þannig mar sparaði sér 1000 kr. Ég og háttvirtur Jónasson aka Formaðurinn horfðum á hann í þægilega sófanum hjá gamla settinu hans Kidda. Þess má til gamans geta að Kiddi er orðinn formaður húsfélagsins í blokkinni hjá sér og er hann vel að þeim titli kominn. Farinn að ganga um í jakkafötum og bjó sér svo til bílastæða skilti sem á stendur FORMAÐURINN. Þessu skilti var auðvitað komið fyrir við stæðið sem er næst inngangnum :D

Vikan búin að vera helvíti góð. Mikið action í skólanum, bæði bóklegt og verklegt. Vorum í Taekwondoe á þriðjudaginn og er þetta brútal sport og krefst mikils liðleika. Mar hefur nú lengi verið kallaður tréhestur þannig þetta er kannski ekki alveg mitt sport,,en gaman samt :) Í dag fórum við í Skvass uppí Veggsport og damn, það er skemmtilegt sport. Mikið action og menn mis tapsárir hehe :)

Var einnig alla síðust helgi í keflavík, þar sem strákarnir mínir voru að keppa á Samkaupsmótinu, semsag þurfti að hlusta á öskrin í 9 miljón krökkum alla helgina. Það er rosa gefandi í svona 2 mínútur og svo er þetta komið fínt. En hvað gerir mar ekki fyrir þessa pjakka, þetta var nú í heildina vel heppnað og gaman að flestu leyti. Við Ómar, sem er að þjálfa 11 ára strákana, leyfðum pjökkunum að fíflast og leika sér eins og þeir gátu um daginn svo það mundi nú örugglega "slökkna" á þeim um 10 leytið...og já það heppnaðist þannig við skelltum okkur útí bíl, stilltum á Bylgjuna og fengum okkur kyppu af bjór. Ómar fékk að ráða stöðinni enda gæti hann verið pabbi minn sá gamli :D

Hér er svo ein mynd af pjökkunum í lokin til að krydda þessa færslu aðeins....enda örugglega hunleiðinleg þegar mar hefur ekkert að segja :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 21:08:27 / Villi

Það er kominn mars..

Hef nú ekki mikið að segja....undanfarnir dagar búnir að vera frekar daprir vegna þess að við Haukapjakkar náðum ekki að halda okkur í efstu deild!!! Ég vil meina að við séum með allt of gott lið til að falla í fyrstu deild. Maður dvelur samt ekki lengi við þetta áfall því þetta er örugglega bara hluti af eihverju betra og skemmtilegra sem er handan við hæðina :)

Það eina sem hefur skemmt okkur 220soldier í vetur eru skórnir hjá einum vini okkar í liðinu...þeir eru reimaðir svo fast að það mætti halda að X héldi að það væri einhver að koma og stela þeim af honum :lol:

 

Vil óska góðvini mínum og bróður Kidda aka Law & Order til hamingju með nýju vinnuna sína. Haldiði að ökuníðingurinn sé ekki kominn í lögguna í sumar en það er gott að vera með lögguna á starfskránni ef maður er að læra lögfræði....Reyndar er hlunkurinn enginn ökuníðingur, eftir að hann flutti að heiman þá hefur hann elst um ein 8 ár og þegar við förum í rassaskoðunarhring í bæinn, þá er keyrt á 40 km/h og hlustað á Gullbylgjuna eins og kom fram í síðustu færslu 8) Ætli ég verði ekki svona gamall í anda þegar ég flyt í júní haha :)

Síðasta föstudag þá var keppni milli íþróttafræðinnar í Keflavík og íþróttafræðinnar á Laugarvatni í allskonar íþróttakeppnum. Það var helvíti gaman og mar fékk sér nokkra kalda eftir það og endaði heima hjá Gunnari Hans aka Mona klukkan 5:30 um morguninn. Hér eru nokkrar myndir frá því kvöldi.

 

Gunnar Hans og ég á djamminu....þurfti ekki að hafa áhyggjur um að hann lenti í slagsmálum...sem var gott haha :lol:

Danni og ég...

Ég (búinn að fá mér nokkra 8| ) og Alda bekkjarsystir....eftir að ég kenndi henni sjampódansinn 8)

Jæja nenni ekki að skrifa meira, þætti vænt um nokkur komment :)

later

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 23:07:45 / kiddi j

27.feb

Wattapp fokkers

Núna eru ekki skemmtilegar tímar í 220. Við haukadrengir erum virkilega að láta rífa á okkur annað gat þessa dagana, það byrjaði allt í borgarnesi þar sem við skoruðum 62 stig í fyrri hálfleik en fengum á okkur 67. Við töpuðum þeim leik 120-104 eða eithvað.....man það ekki þar sem ég leit ekki á töfluna um leið og ég labbaði út. En það er alveg öruggt að mar spilar varl við leiðinlegra lið en Skallgrím.

Svo hélt gatsmyndunin áfram í gærkvöldi, þar sem við skoruðum 60 stig í heilum leik á móti virkilega slöku liði Þórs, sú staðhæfing segir allt um okkar leik m.a. 

En slatti hefur verið á döfinni þessa dagana, m.a. slóg maður aðeins út af laginu og skellti sér á árshátið lögréttu (nemandafélagið), sem er nú óvenjulegt þar sem mar er einnig þekktur sem gamli fúlíus, sem er svo sem ekkert skrítið þar sem Gullbylgjan er orðin nr. 1 á stöðvatökkunum í yarisnum :haha: . En ekki kom það á óvart að loksins að mar stígur út úr húsi þá vekur maður endalausar athygli hjá sífellisdrotningum bæjarins sem voru alveg slefandi yfir kappanum.... hlýtur að vera base-tanið eða krullurnar. Einnig kíktum við Villison og tengdasonur íslands smá hring í 101 seinasta laugardag þar sem við Villi aka Billy Blanks fórum í break dans keppni á pravda, og hafði nú penslarinn vinninginn þar sem hann er nú búinn að vere einn helsti eróbik frömuður íslands seinsata mánuðinn, kennandi í WC og shiiiit.

Svo hafa verið próf seinasta mánuðinn og er mar nú bara nokkuð örruggur að mar hafi náð þeim.

Um daginn hélt Malli aka the Chief aka sturtuvörðurinn, þetta líka fína PlayStation party fyrir okkur lærlinga hanns, þar sem kallin var búinn að fá 3 skjávarpa og blastaði þeim á stofuveginna heima hjá sér. Ekki var það nú vel sótt en, ég, Sæsi aka VanDamme :haha:, Siggzter, Don Luigi, Dásgríms og Chiefinn tókum nokkra leiki í FIFA og NBAlive. Menn á borð við prince Villiam og Svenna kálfapressu voru fjarri góðu gamni, trúlega að gera eithvað nytsamlegra en að spila PS2.

Einnig hefur mar verið að vinna eins og MOFO á Yello allar helgarnar í febrúar, og hefur það nú gengið sæmilega fyrir sig, enda fokka engir heilbrigðir menn í dyravörðum....allavegana ekki þeir sem hafa séð stórmyndina með Patrick Swayzie (Road House), Við prins tókum  m.a. eina vakt saman um daginn þar sem, við þurftum ekki að slíta barkakýlið úr neinum, en spörkuðum nokkrum pólverjum út á skallanum. Sem var ekki leiðinlegt.

Vá ég get bullað endalaust núna....Við pabbi fórum síðan í smá hjólatúr seinasta laugardag en kíktum í bláfjöll þar sem við náðum einni helvítri góðri mynd sem mynnti óvenju mikið á einn goðsagnapersónu bandaríkjamanna. En ég ætla ekki að lýsa biturleika mínum á fólki í umferðinni, en það er gjörsamelega siðlaust þegar kemur að því að vera í umferðinni á sama tíma og mótorhjól. Ég er ekki frá því að það hafi verið ætlun nokkra vafasamra einstaklinga að drepa mann þarna.

En nóg af bullinu núna

KJ10 8)

shiiii, ekkert svo ólíkur bigfoot haha


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 14:20:13 / Villi

All Star Weekend

Þá er All Star Weekend í NBA í fullum gangi og nokkur tilþrif litið dagsins ljós....Ég vil byrja á því að óska Haukastelpum og ÍR strákum til hamingju með bikarmeistaratitlana...Ég og Kiddi fríuðum okkur frá öllu bikardjammi þar sem við vorum að tuska til blindfulla Keflvíkinga á Yello framundir morgun. Dagurinn í dag fer í lærdóm og leti enda er maður hálf þunnur eftir reykinn á þessum skemmtilstöðum.

Hér koma nokkrar myndir frá All Star Weekend:

 

 Dwight Howard aka D12 að hoppa pínu....shiiit

Sjá alla kallana: frá vinstri, Kobe, Vince Carter, Dominique Wilkins, Dr. Julius Erving og sjálfur Michael Jordan á endanum, casual klæddur og fínn og ekki lengur helköttaður spaði með 5% fitu :haha:

D12 að skella límmiða á toppinn á sðjaldinu áður en hann treður tuðrunni.

Nate "litli" Robinson, aðeins 170 cm og getur hoppað aðeins.

Sigurtroðslan í gær...Gerald Green, tvítugur gutti úr Celtics

 

Svo ein í lokin af okkur hlunkunum til þess að sýna hvað NBA gaurar eru stórir....Rasho Nesterovic úr Raptors hverfur á milli okkar Kidda hérna....EKKKI :haha:

Komið svo með komment....Later

Villi


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 21:39:54 / Villi

Update

Jæja ég nenni ekki að hafa þetta langt í dag....nokkuð mikið að gera í skólanum og ég og Danni erum búnir að vera eftir alla vikuna að vinna í verkefnum.

Ég er að reyna að klára leiktímabilið í körfunni þó svo að ég eigi að vera að hvíla....mjög líklega kviðslitinn sem er ekki gott :(

Stelpurnar í kvennaliðinu spila til úrslita í birkakeppninni á laugardaginn í laugardalshöll kl. 14 og hvet ég alla sem hafa áhuga að kíkja..Áfram Haukar :haha:

Sonja lil sis er í DK að læra dýralækninn og er búinn að vera að húðfletta og kryfja einhver hundskvikindi....mjög smekklegt.

Dabbi bró er á fullu í Flensborg, fær bílpróf eftir 4 mánuði...shit hvað tíminn líður...kallinn er byrjaður á Mass Factor og ætlar sér í atvinnumennsku í soccer..

Jónas aka YONAZ litli bróðir Kidda fær bílpróf eftir 160 and counting...hann er svo spenntur að hann telur mínúturnar. Hann er á fullu í körfunni og búinn að skafa af sér einar 8 mjólkurfernur og lítur þokkalega vel út kallinn....keep up the good work

 KJ10 er á fullu í lögfræðinni, hann tryggði okkur sigur á Fjölni síðasta sunnudag með gullfallegur þriggja stiga skoti. Við hlunkarnir erum svo að fara að vinna á Yello á laugardaginn sem dyraverðir :haha:

Ég flyt til keflavíkur í Júní ef allt gengur eftir, er kominn með íbúð þar og get ekki beðið eftir því að komast að heiman ;)

Svo er það bara að telja niður í Serbíuferðina hjá mér og Danna, vona að mar verði orðinn heill heilsu heheh :)

 Jæja nenni ekki að hafa þetta lengra í bili, tjekkið á þessu video, þetta er snilld!!!

http://www.youtube.com/watch?v=d8oJC0vqzsk

l8ter


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 21:04:59 / kiddi j

Sta ima smekeru

Damn hvað það er alltaf erfitt að byrja bloggfærslu, hvað á maður að segja, góðan dag, eða jæja eins og ég hef trúlega byrjað allar færslur sem ég hef gert.

Mér langar ekkert að tala um körfubolta vegna þess að það er ekkert skemmtilegt að tala um og jú við töpuðum víst seinast á móti Kef, og það var ekkert rosalega gaman að þurfa að fara að vinna í keflavík kvöldið eftir leikinn, en fékk ég samt aðeins að heyra það frá þeim meðlimum keflavíkur liðsins sem komu á Yello að við værum mikklu betri en það sem við sýndum á móti þeim, sem er trúlega alveg satt.

En leikur á móti KR á föstudaginn. Vonandi verða úrslitin ekki slæm.

En gaman að segja frá því að þegar ég var að vinna á Yello, þá var eigandi staðarins búinn að grafa upp einhverja vintage klámmynd frá 1960. Ekki er það nú kanski klámfengið efni miðað við það sem við þekkjum í dag, en þetta var ekki mikið meira en túttusýning af bestugerð, bara jákvætt.

En ég spjallaði við óbreyttan Bojovic í morgun, og sendi hann mér nokkuð skemmtilegar myndir af sjálfum sér að syngja, ekki í sturtu en á fyrstu tónleikum sínum með hljómsveitinni sinni í nokkur ár. Eins og allir vita er Kuki mikill söngfugl og er hljómsveitinn hans ein frægast ´´SKA´´ hljómsveitin í Serbíu. Ska er víst ættuð til Reggea en með aðeins hraðari takt. Hver veit nema kallin komi með bandið og haldi Gigg hérna á klakanum, ég veit að ég verð fremsta grúppían og mun reyna hitta Kuki í andlitið með boxerunum mínum.

Ég er í engu stuði til að bulla, en fariði ekki að grenja , mar fær hvort eð er ekki það mörg komment lengur. :^)

At ease soldiers

KJ8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 13:55:04 / Villi

Janúar á enda

Jæja er ekki kominn tími á blogg..Agent Jónasson sagði að það væri kominn tími á mig, þó svo að ef talið væri í fjölda færslna þá ætti ég vinninginn 27-3. Lítið að frétta svosem þessa dagana. Skólinn er á fullu og gengur bara ágætlega held ég. Ég er ekki byrjaður að æfa á fullu aftur og þarf að hvíla mig í 1-2 vikur í viðbót útaf helv. Náranum. Á æfingu á mánudaginn komu tvær huggulegar píur til þess að láta okkur taka eitthvað sálfræðipróf um liðsandann í liðinu eða eitthvað svoleiðis. Það mætti halda að Kiddi kallinn hafi haldið að starfsmenn af Kleppi væru að koma til þessa að leita sér að vistmönnum því kappinn rauk upp eins og hann væri að fara að missa af lokaþættinum í Desperate Housewifes.

Við fengum nýjan serbneskan leikmann sem heitir Peja aka Lati Divac og held ég að ég hafi aldrei séð eins latan mann á æfinni þó svo að þetta sé fínasti gaur.

Óbreyttur Bojovic aka KUKI varð 29 ára gamall í gær og er hann farinn að finna þefinn af ellilífreyrinum. Hann hatar afmælisdaga, enda Serbi, þannig ég lét mér nægja að kasta smá kveðju á kallinn.

Síðasta helgi var helvíti fín, það var bekkjarpartý í Keflavík og mætti vel valið fólk og fékk sér öl. Farið var í pottinn sem var hápunktur kvöldsins og svo var haldið í bæinn að dansa. Við fólkið úr bænum gistum svo í Kef og var vaknað um hádegi og haldið á Lagnbest í þynnkupizzu.

Ísland er dottið úr leik á HM eftir grátlegt tap gegn dönum en þó er árangurinn engu að síður mjög góður. Að mínu mati var 220soldier Logi Geirsson aka L&I jafnbesti maður íslenska liðsins í heildina ásamt fleirum, þó svo að hann hafi gert mistök á lokasprettinum. Sýnir manni hvað hægt er að fara langt á hugarfari í bland við óhóflegar lyftingar hehe.

Engar fréttir eru af Dodda á Spáni og ef þú lest þetta pjakkur þá máttu koma með gott komment eða hringja við tækifæri.

Leikur við Keflavík á morgun á Ásvöllum og hvet ég alla til að mæta og hvetja okkur...ekki veitir af :haha:

 

Later

quote dagsins: ***** is a nice guy but he´s a bit of a DAMMY

 

smá einkahúmor, það ná ekki allir þessum...


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 13:19:27 / kiddi j

Dagur eftir tapleik er.......

komdu með þína skoðun í kommentum.

að mínu mati eru þetta leiðinlegustu dagar sem til eru  .enda búinn að upplyfa þá nokkra síðustu ár.

Maður er frekar áhugalaus í skólanum og vill helst skoða video á NBA.com

Kiddi :(


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan